Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla sem var bara ansi gott og skemmtilegt hja mer og vonandi hjá þer lika.....
Langt siðan eg bloggaði síðast og mikið búið að gerast og ætla ég nú að reyna að stikla á stóru og vonandi hefur þú gaman af.....
Árið 2007 byrjaði nú ekki alveg nógu vel.... vaknaði á nýársdag og áttaði mig á þvi að ég væri ennþá búsettur í Keflavík 
Ég vann í leikskóla um sumarið og það var ótrúlega skemmtileg og nytsamleg vinna og kynntist þar fullt af góðu fólki. svo kíkti Harpa við í um einn mánuð og lagði krökkunum lífsreglurnar...
Báðir eldri bræður mínir gerðu konur sínar óléttar og eignast ég þvi allavega einn frænda og kannski einn annan eða litla frænku 
Baldur ákvað að flytja úr landi og skilja mig einan, nakin, kaldan, hræddan og óharnaðan eftir í Rainy-kef en hann er semsagt núna búsettur í Stavanger í Noregi og spilar með Bryne, en samkvæmt heimildum hans er liðið svo feikisterkt að Barcelona myndu ekki vera mikil fyrirstaða fyrir þetta samba-lið 
Harpa mín flutti hingað um sumarið og vann á hótel Keflavik og síðan á Leikskólanum Gimli með mér, ásamt þvi að vera í vinnu við að þrífa skítinn af mér og Baldri á Suðurgötunni og baka 

Harpa að baka skinkuhorn.....
Ég höfuðkúpubrotnaði í fótboltaleik í Danmörku og þar fór skemmtileg Danmerkurferð fyrir lítið en elsku harpa mín var nú góð við mig og stjanaði i kringum mig í 3 daga í Köben, sem áttu að fara í að versla og slappa af og hafa það gott í sólinni en......

Hérna er ég semsagt tvíhöfuðkúpubrotinn og með heilhristing á hóteli í Kaupmannahöfn og það er 20 stiga hiti og sól úti.... þurfti að vera með sólgleraugu allan daginn og matti ekki horfa á sjónvarpið eða lesa......... semsagt gerði bókstaflega ekki neitt!!!
Ég byrjaði í Viðskiptafræði i HÍ og er að finna mig bara nokkuð vel í þvi, gengur bara fint og stefni ótrauður á BS hehe
Pabbi tók við Völsung um daginn og ætlar að reyna að galdra eitthvað úr börnunum sem spila þar, en þar er elsti maðurinn fæddur 1988 ef mér skjáttlast ekki, en þeir eiga nú eftir að fá einhverja leikmenn fyrir sumarið.
svo kynntist ég náttúrulega fullt af góðu fólki á árinu, fullt af strákum í U-21 í fótbolta og í skólanum og þannig.
Ég ferðaðist mikið á árinu, fór til Hollands, Danmerkur, Belgiu, Slóvakíu, Þýskalands, Noregs, Spánar man ekki meira, en var svona aðalega að fótboltast og svo að heimsækja fólk.
svo fór ég norður um jólin og það var geðveikt!!!! ég og harpa vorum í bland á akureyri og á húsavík og átum á okkur gat alla daga 

Fékk þessa lopapeysu fá ömmu í sveitinni 
svo kemur herna smá info um fótboltann og ef að þú ert ekki áhugamaður um það þá bara hættiru að lesa herna....

æji ja nu man ég það elska náttúrulega allir fótbolta 
Við í Keflavik fengum þrusu start í sumar og vorum lengi vel i toppbáráttunni en siðan um mitt sumar fór að halla undan fæti og við enduðum í 6 sæti sem voru mikil vonbrigði. Reyndar gekk okkur vonum framar í UEFA cup, þar sem við unnum Mydtjylland á heimavelli 3-2 og er það einn stærsti sigur sem íslenskt félagslið hefur unnið stóð einhvers staðar... siðan fórum við út til danmerkur í seinni leikinn og vorum yfir 1-0 lengi vel eftir að Baldur ákvað að skora í staðinn fyirr að senda á mig ( en það lýsir hans persónuleika frá A-Ö )
en á siðustu 15 mínútunum skoruðu þeir 2 mörk og unnu leikinn 2-1 og fóru áfram í næstu umferð þar sem að viðureignin endaði 4-4 en þeir skoruðu fleiri mörk á útivelli!!!! þar var annað svekkelsi en svona þegar maður lítur til baka er maður ánægður með hvernig okkur gekk gegn þeim.

Svo spilaði ég einnig 5 leiki með U-21 og gekk bara vel, við erum í baráttu um að komast upp úr riðlinum og eigum einmitt að spila við kýpur núna 6 feb. og við tökum þá í þurran xxxxxxx.
